10.6.2009 | 10:16
Heilsuvika í Jyderup
Heilsuvika í Jyderup
Dönsk náttúruperla í sumarskrúða!
Í danska bænum Jyderup á Sjálandi er að finna notalegt, íslenskt gistihús þar sem boðið verður upp á ánægjulega vikudvöl með hollu ívafi í sumar. Gistihúsið er staðsett í sannkallaðri náttúruparadís í skógarjaðrinum rétt við fallegt stöðuvatn. Jyderup er smábær með langa sögu, en hann er staðsettur á norðvesturhluta Sjálands, mitt á milli Kalundborgar og Holbæk.Lögð verður áhersla á hollt, gómsætt og grænt mataræði, heilsusamlega hreyfingu og jákvætt og hlýlegt umhverfi!■□■□■□■□■□■□■□■□■□■□■□■□■□■□■□■□■□■□■□■□
Í boði verða:▪
Gönguferðir
▪ Hjólaferðir í skóginum
▪ Fyrirlestrar um hreyfingu og hollt matarædi
▪ Djúpnudd með yndislegum olíum (greidist sér)
▪ Aðstaða til líkamsræktar
▪ Fullt fæði
▪ Fallegur garður til útiveru
Um vikudvöl er að ræða og er bæði tekið á móti hópum og einstaklingum (max 14 manns). Fyrsta vikudvölin hefst þann 23. júní, en í bodi verda nokkrar vikur í sumar
Næstu vikur eru frá 2 júlí ,frá 11 júlí,frá 20 júlí og frá 29 júlí.
Áhugasamir hafi samband við Guðrúnu í gegnum tölvupóst eða síma:
gudanm@hotmail.com - (0045) 5920-8961 / (0045) 4019-7519.
Þá er hægt að skoða heimasíðu gistiheimilisins ,Hyggestuen
.Heildarverd : 69.900 krónur
Athugið: Ekki er um megrunarferð að ræða, heldur ljúfa dvöl með hollu ívafi í mat, drykk, hreyfingu og jákvæðum straumum. Tilgangurinn er að njóta lífsins í hópi skemmtilegs fólks!
■□■□■□■□■□■□■□■□■□■□■□■□■□■□■□■□■□■□■□■□
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 10:18 | Facebook
Athugasemdir
oh! mikið væri gaman að geta skroppið eina viku til þín, dauðlangar til DK í sumar en kemst engan vegin því miður :( hefði helst viljað komast í mánaðardöl hjá dóttlunni minni sem býr rétt hjá Glesborg en því er ekki að heilsa í ár.
Vona að þú fyllir þessar vikur snarlega elskan, gangi þér vel
Guðrún Jóhannesdóttir, 10.6.2009 kl. 10:30
Gangi þér vel með þetta flotta framtak. Væri alveg til í viku eða svo en er ekki á leiðinni norður á boginn í bráð.
Hlýjar kveðjur frá Prag.
Ía Jóhannsdóttir, 10.6.2009 kl. 10:32
spennandi
Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 10.6.2009 kl. 10:34
´Nafna mín Takk fyrir .Veit ad tú átt eftir ad koma og einnig ad njóta med dóttir tinni í Glesborg.´
Já vonum ad vid fáum gód vidbrögd.
KNús
Gudrún Hauksdótttir, 10.6.2009 kl. 10:37
Ía mín takk tú kemur sídar tegar tú átt leid.
Birna mín ,tetta er voda sepennandi og skemmtilegt.
kvedja til ykkar.
Gudrún Hauksdótttir, 10.6.2009 kl. 10:38
Mikið rosalega væri gaman að koma til þín, þetta líst mér vel á
Jónína Dúadóttir, 10.6.2009 kl. 11:24
Sæl Guðrún mín!
Mér finnst þetta hljóma bara ofboðslega girnilega og spennandi hjá þér. Allavega þegar ég las þetta, þá óskaði ég þess að geta komið þarna og dvalið í viku, með minn heittelskaða með mér. En því miður leyfir fjárhagur heimilisins það ekki - ef til vill seinna.
Kær kveðja
Ásdís Emilía Björgvinsdóttir (IP-tala skráð) 10.6.2009 kl. 11:27
Glæsilegt hjá þér - til hamingju með þetta.
Kveðja,
Freyja.
Freyja Gísladóttir (IP-tala skráð) 10.6.2009 kl. 11:44
Flott hjá þér, en ég er svolítið hrædd um að markaðurinn sé ekki hér á landi vegna efnahagshruns en Svíþjóð og Þýskaland eru í næsta nágrenni og lönd koll af kolli allt um kring og kostar ekki offjár að koma til þín þaðan. En gangi þér vel ljúfan mín, frábært framtak hjá ykkur.
Knús og stórt faðmlag til þín frá fróni
Sigríður B Svavarsdóttir, 10.6.2009 kl. 11:51
Þetta er ekkert smá spennandi Guðrún mín. Verð að láta mig dreyma fyrst um sinn, vonandi koma tímar og koma ráð.
Gangi þér rosalega vel með þetta ég hef trú á þessu hjá þér kæra vinkona.
Knús og kram til þín
Ragna (IP-tala skráð) 10.6.2009 kl. 12:22
Jónína mín.Mér finnst bara svo mikilvægt ad geta komid í rólegheit og slaka á .Borda gódann mat en taka smá á tví med göngum.
Vonandi sé ég til á Heilsuvikunni:)
Gudrún Hauksdótttir, 10.6.2009 kl. 12:47
Ásdís, Freyja,Sigrídur ,og Ragna.
Tid verdid kannski hérna í huganum .Tó enntá betra væri fyrir sálina og kroppinn ad vera á stadnum.
Hjartanskvedjur til ykkar allra :)
Gudrún Hauksdótttir, 10.6.2009 kl. 12:49
thetta er frábært framtak hjá thér Gudrún vonandi gengur thetta bara vel hjá thér og fyllist á nótæm.
knús og kram hédan
María Guðmundsdóttir, 10.6.2009 kl. 13:04
Takk Maja mín.
Er svo ánægd med tetta og held tetta sé svo gott fyrir alla.Ekki of mikid og ekki of lítid í bodi.
Knús.
Gudrún Hauksdótttir, 10.6.2009 kl. 13:48
Glæsilegt framtak! Það fyllist örugglega hjá þér, enginn vafi! Væri alveg til í gott nudd!!!
www.zordis.com, 10.6.2009 kl. 15:09
Zordís mín Tad ætla ég ad vona.Er bara svo glöd med ad hafa sett tetta í gang .Tad er alltaf fólk sem hefur törf fyrir ad dekra adeins vid sig og lætur tad eftir sér.Held ad margir hafi bara svo mikkla törf fyrir ad ná í fegurd fyrir sálina:)
Knús til tín elskuleg.
Gudrún Hauksdótttir, 10.6.2009 kl. 15:51
Gott að vita af þessu Guðrún mín .. Ef ég slæðist til Danmerkur kem ég við hjá þér.
Unnur María Hjálmarsdóttir (IP-tala skráð) 10.6.2009 kl. 16:47
hljómar yndislega ! gangi þér vel með þetta fallega projekt !
Steinunn Helga Sigurðardóttir, 10.6.2009 kl. 19:09
Gott að vita af þessu.Flott framtak bloggvina.
Anna Ragna Alexandersdóttir, 10.6.2009 kl. 19:41
Rosalega hljomar þett spennandi, vildi að ég gæti komið, kannski vinn ég í lottó og þá skelli ég mér. Gangi þer vel með þetta elsku vinkona.
Ásdís Sigurðardóttir, 10.6.2009 kl. 21:42
Oh þetta er æðislegt hjá ykkur vinkona,mikið væri ég til í að koma í viku þetta hljómar svo vel og einhvernvegin veit ég að þú gerir allt 150 prósent,ef ég á einhvertíma eftir að komast til Danaveldis,þaðan sem maðurinn minn er ættaður,þá kem ég við hjá þérgangi þér vel elskan og eigðu gott sumar
Sigríður Ágústa Þórólfsdóttir, 10.6.2009 kl. 22:31
Takk fyrir gódar kvedjur kæru bloggvinkonur mínar.
Bestu kvedjur til ykkar
Gudrún Hauksdótttir, 11.6.2009 kl. 11:10
Glæsilegt hjá þér Guðrún. Því miður gefst ekki tími í þetta í sumar en hver veit hvað framtíðin ber í skauti sér!
Ingibjörg Hinriksdóttir, 11.6.2009 kl. 19:34
Því miður hef ég ekki tíma til þess að taka heilsuviku hjá þér, en þetta er örugglega meiri háttar. Og vona ég að það verði fullt hjá ykkur í allt sumar.
Heiður Helgadóttir, 12.6.2009 kl. 08:07
Takk fyrir bádar tvær.Ingibjörg og Heidur.
Svo í haust verdur tad danmörk og svítjód sem taka tátt.
Kvedja til ykkar.
Gudrún Hauksdótttir, 12.6.2009 kl. 08:21
Flott framtak hjá þér Guðrún og vonandi að þú fáir sem allra flesta í heimsókn til þín. Verst að nú er sultarólin mín komin í innsta gatið og ekki þorir maður fyrir sitt litla líf að opna budduna fyrir neitt nema mjólk og brauð þessa dagana því búið er að spá versnandi horfum með haustinu. Fer því ekki út fyrir landsteina þetta árið. En ég ætla þó að leyfa mér að borða mitt brauð og mína mjólk í sumarbústað í næstu viku Það verður allt sumarfríið þetta árið
, 12.6.2009 kl. 21:53
Yndislegt hefði verið að geta dvalið hjá þér og notið als þess sem þar er í boði, en ég hef ekki tækifæri á því að sinni. Er viss um að allt fyllist hjá þér. Gangi þér vel með þetta góða framtak. Kv.
Ólöf Jóhanna Pálsdóttir, 13.6.2009 kl. 16:35
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.